Alls hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 657 manns á tímabilinu frá 1. desember á síðasta ári til 1. júlí. Nú eru 232.015 einstaklingar skráðir í Þjóðkirkjuna.
Fjölgun mest í kaþólska söfnuðinum, Siðmennt og Ásatrúarfélaginu
Á sama tímabili fjölgaði í kaþólska söfnuðinum um 398 manns eða um 3,8% og í Siðmennt um 240 manns eða um 8,5%. Aukning var einnig í Ásatrúarfélaginu eða um 159 manns sem er 3,6%.
Fjölgar hjá þeim sem eru utan trú- og lífsskoðunarfélaga
Alls voru 25.454 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. júlí sl. og fjölgaði þeim um 691 frá 1. desember 2018 eða um 2,3%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélög þann 1. júlí sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2017 og 2018.