Alls hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 632 manns á tímabilinu frá 1. desember á síðasta ári til 1. ágúst. Nú eru 232.040 einstaklingar skráðir í Þjóðkirkjuna.
Fjölgun mest í kaþólska söfnuðinum
Á sama tímabili fjölgaði í kaþólska söfnuðinum um 437 manns eða um 3,1% og í Siðmennt um 320 manns eða um 11,4,%. Aukning var einnig í Ásatrúarfélaginu eða um 196 manns sem er 4,4% fjölgun.
Alls voru 25.512 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. ágúst sl. og fjölgaði þeim um 749 frá 1. desember 2018 eða um 3,0%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélög þann 1. ágúst sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2017 og 2018.
Tölurnar byggja á skráningu einstaklinga í sveitarfélög samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.