Innskráningarþjónusta Ísland.is býður upp á innskráningu inn á vefi yfir 200 þjónustuveitenda og að jafnaði 25 þúsund manns nýta sér þjónustuna daglega. Í ágúst 2019 voru samtals 1.501.749 innskráningar. Í ágúst 2018 voru innskráningar samtals 766.177 og fjölgar því innskráningum um 96% frá sama tíma í fyrra. Samtals hafa 10.251.664 innskráningar verið skráðar síðastliðna 12 mánuði.
Íslykill er hluti af innskráningarþjónustu Ísland.is en þar er líka hægt að nota rafræn skilríki í síma og á kortum. Þann 2. september 2019 höfðu verið gefnir út 287.952 Íslyklar til einstaklinga og 17.467 til fyrirtækja. Hlutfallsleg notkun innskráningarleiða síðastliðinn mánuð er: Íslykill 39,10%, rafræn skilríki á korti 0,24% og rafræn skilríki í farsíma 60,28%.
Hægt er að nálgast ofangreindar upplýsingar í meðfylgjandi excel skjali.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.