Vegna lokunar í Borgartúni og nærliggjandi götum í dag vekur Þjóðskrá Íslands athygli á því að aðgengi að afgreiðslu stofnunarinnar að Borgartúni 21 getur verið háð umræddri lokun. Afgreiðsla Þjóðskrár Íslands er opin frá 9 til 15.
Frekari upplýsingar um götulokanir má finna hjá Lögreglunni og Vegagerðinni.