Þjóðskrá13. september 2019

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í september 2019

Alls voru 47.573 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi þann 1. september 2019 og hefur þeim fjölgað um 3.417 frá 1. desember 2018 eða um 7,7%.

Alls voru 47.573 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi þann 1. september 2019 og hefur þeim fjölgað um 3.417 frá 1. desember 2018 eða um 7,7%. Á sama tíma fjölgaði íslenskum ríkisborgurum sem eru búsettir hér á landi um 0,5%.

Flestir erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi eru frá Póllandi eða 20.233 og 4.469 einstaklingar eru með litháískt ríkisfang.

Pólskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 5,4% frá 1. desember sl. eða um 1.043 frá 1. desember 2018 og litháískum ríkisborgurum um 375 á sama tímabili eða um 8,8%. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda búsetta hér á landi eftir ríkisfangi þann 1. desember 2017 og  2018 og þann 1. september 2019.

Þessar tölur eru byggðar á skráningu þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar