Mynd sýnir samanburð á kaupverði og fasteignamati atvinnuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu m.v. skráningu í kaupskrá síðastliðna 12 mánuði
Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.
Í ágúst 2019 var 26 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 1.207 milljónir króna.
Þar af voru 14 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 580 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 498 milljónir króna.
Á sama tíma var 35 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 454 milljónir króna.
Þar af voru 20 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 357 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 303 milljónir króna.
Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.