Þjóðskrá02. október 2019

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög í október 2019

Alls hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 988 manns á tímabilinu frá 1. desember á síðasta ári til 1. október. Nú eru 231.684 einstaklingar skráðir í Þjóðkirkjuna.

Alls hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 988 manns á tímabilinu frá 1. desember á síðasta ári til 1. október.  Nú eru 231.684 einstaklingar skráðir í  Þjóðkirkjuna.

Fjölgun mest í kaþólska söfnuðinum

Á sama tímabili fjölgaði í kaþólska söfnuðinum um 469 manns eða um 3,4% og í Siðmennt um 454 manns eða um 16,1,%. Aukning var einnig í Ásatrúarfélaginu eða um 228 manns sem er 5,1% fjölgun.

Alls voru 25.628 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. október sl. og fjölgaði þeim um 865 frá 1. desember 2018 eða um 3,5%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélög þann 1. október sl.  og samanburð við tölur frá 1. desember 2017 og 2018.

Tölurnar byggja á skráningu einstaklinga í sveitarfélög samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar