Þjóðskrá29. október 2019

Hverjir eiga viðskipti með íbúðarhúsnæði? - október 2019

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um hverjir eru að eiga viðskipti með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um hverjir eru að eiga viðskipti með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Kaupendum og seljendum er skipt eftir því hvort þeir eru fyrirtæki eða einstaklingar og gögnin sett fram eftir ársfjórðungum til þess að minnka sveiflur af völdum mismikilla viðskipta í einstökum mánuðum.

 Mynd sem sýnir tímaröð yfir það hverjir stunda viðskipti með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu

Mynd 1. Skipting viðskipta með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. 

 

 Mynd sem sýnir tímaröð yfir það hverjir stunda viðskipti með íbúðarhúsnæði í miðbænum

Mynd 2.  Skipting viðskipta með íbúðarhúsnæði í Reykjavík vestan Kringlumýrarbrautar. 

 

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum.

Fyrstu kaupendur

Frá október 2015 hefur Þjóðskrá Íslands birt upplýsingar um fjölda þeirra sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð. Taldir eru þinglýstir kaupsamningar og afsöl um íbúðarhúsnæði án undangengins kaupsamnings og eignayfirlýsingar. Ekki eru taldar með eignatilfærslur byggðar á erfðum eða öðru slíku. Heimild til lægri stimpilgjalda vegna fyrstu kaupa hefur verið til staðar frá 1. júlí 2008. Af þessum sökum eru engar þinglýstar upplýsingar um fyrstu kaup fyrir þann tíma. Rannsókn á því hvort um fyrstu kaup var að ræða fór fram við móttöku skjala til þinglýsingar hjá sýslumönnum.

Upplýsingar um fyrstu kaup 2. ársfjórðung 2019

  Fjöldi kaupsamninga Þar af fyrstu kaup  Hlutfall fyrstu kaup 
 Höfuðborgarsvæðið  1949  549  28%
 Suðurnes  201  63  31%
 Vesturland  105  21  20%
 Vestfirðir  64  21  33%
 Norðurland vestra  38  11  29%
 Norðurland eystra  246  82  33%
 Austurland  80  22  28%
 Suðurland  250  54  30%

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum frá 2008.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar