Innskráningarþjónusta Ísland.is býður upp á innskráningu inn á vefi yfir 200 þjónustuveitenda og að jafnaði 55 þúsund manns nýta sér þjónustuna daglega. Í október 2019 voru samtals 1.635.238
innskráningar. Í október 2018 voru innskráningar samtals 739.474 og fjölgar því innskráningum um 121% frá sama tíma í fyrra. Samtals hafa 12.082.110 innskráningar verið skráðar síðastliðna 12 mánuði.
Íslykill er hluti af innskráningarþjónustu Ísland.is en þar er líka hægt að nota rafræn skilríki í síma og á kortum. Þann 1. nóvember 2019 höfðu verið gefnir út 290.978 Íslyklar til einstaklinga og 18.126 til fyrirtækja. Hlutfallsleg notkun innskráningarleiða síðastliðinn mánuð er: Íslykill 46,52%, rafræn skilríki á korti 0,23% og rafræn skilríki í farsíma 53,06%.
Hægt er að nálgast ofangreindar upplýsingar í meðfylgjandi excel skjali.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.