Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 2.239 á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. nóvember sl. Þetta er hlutfallsleg fjölgun upp á 1,7%. Þau sveitarfélög sem næst komu voru
Kópavogur með 887 íbúa eða 2,4% fjölgun og Mosfellsbæ með 574 íbúa eða 5,0% fjölgun.
Hlutfallslega mest fjölgun í Fljótsdalshrepps
Þegar horft er til alls landsins þá fjölgaði íbúum Fljótsdalshrepps hlutfallslega mest eða um 12,3%, um 9 íbúa eða úr 73 í 82 íbúa.
Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Langanesbyggð, um 5,3% og í Dalabyggð um 4,3%. Þá fækkaði íbúum í 10 af 72 sveitarfélögum landsins frá 1. desember síðastliðinn
Fjölgar í öllum landshlutum
Lítilsháttar fjölgun hefur orðið í öllum landshlutum frá 1. desember síðastliðnum.
Hlutfallslega mest fjölgun varð á Suðurlandi. Þar fjölgaði um 988 íbúa eða 3,3%. Íbúum höfuðborgarsvæðisins fjölgaði um 4.492 eða 2,0% og íbúum á Suðurnesjum fjölgaði um 728 eða 2,7%.
Íbúum landsins hefur fjölgað um 6.722 manns eða 1,9% á ofangreindu tímabili. Þann 1. nóvember sl. voru 363.393 einstaklingar skráðir með búsetu hér á landi samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum þann 1. nóvember sl. og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2017 og 2018.
Tölurnar byggja á skráningu einstaklinga í sveitarfélög samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.