Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 2.434 á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. desember sl. Þetta er hlutfallsleg fjölgun upp á 1,9%. Þau sveitarfélög sem næst komu voru Kópavogur með 951 íbúa eða 2,6% fjölgun og Garðabær með 616 íbúa eða 3,8% fjölgun.
Hlutfallslega mest fjölgun í Fljótsdalshreppi
Þegar horft er til alls landsins þá fjölgaði íbúum Fljótsdalshrepps hlutfallslega mest eða um 17,8%, um 13 íbúa eða úr 73 í 86 íbúa.
Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Dalabyggð, um 4,8% og í Langanesbyggð um 4,7%. Þá fækkaði íbúum í 10 af 72 sveitarfélögum landsins frá 1. desember síðastliðinn
Fjölgar í öllum landshlutum
Lítilsháttar fjölgun hefur orðið í öllum landshlutum frá 1. desember síðastliðnum.
Hlutfallslega mest fjölgun varð á Suðurlandi. Þar fjölgaði um 1.102 íbúa eða 3,7%. Íbúum höfuðborgarsvæðisins fjölgaði um 4.831 eða 2,1% og íbúum á Suðurnesjum fjölgaði um 782 eða 2,9%.
Íbúum landsins hefur fjölgað um 7.208 manns eða 2,0% á ofangreindu tímabili. Þann 1. desember sl. voru 363.879 einstaklingar skráðir með búsetu hér á landi samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum þann 1. desember sl. og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2017 og 2018.
Tölurnar byggja á skráningu einstaklinga í sveitarfélög samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.