Þjóðskrá04. desember 2019

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í nóvember 2019

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í nóvember 2019 var 654. Heildarvelta nam 36 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 55 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 25 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 8 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3 milljörðum króna.

Fasteignavelta á höfuðborgarsvæðinu undanfarna 13 mánuði

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í nóvember 2019 var 654. Heildarvelta nam 36 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 55 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 25 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 8 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3 milljörðum króna.

Þegar nóvember 2019 er borinn saman við október 2019 fækkar kaupsamningum um 33,8% og velta minnkar um 29,2%. Í október 2019 var 988 kaupsamningum þinglýst, velta nam 50,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 51,4 milljónir króna.

Þegar nóvember 2019 er borinn saman við nóvember 2018 fækkar kaupsamningum um 9,9% og velta minnkar um 8%. Í nóvember 2018 var 726 kaupsamningum þinglýst, velta nam 39,1 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 53,9 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 14 í nóvember 2019 eða 2,3% af öllum samningum. Í október 2019 voru makaskiptasamningar 11 eða 1,2% af öllum samningum. Í nóvember 2018 voru makaskiptasamningar 16 eða 2,3% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á október 2019 og nóvember 2019

Október 2019

Nóvember 2019

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

38.338

813

24.958

503

-34,9%

-38,1%

Sérbýli

10.703

137

7.976

106

-25,5%

-22,6%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.739

38

3.028

45

74,1%

18,4%

Samtals

50.781

988

35.962

654

-29,2%

-33,8%

 

Tafla 2. Samanburður á nóvember 2018 og nóvember 2019

Nóvember 2018

Nóvember 2019

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

25.764

563

24.958

503

-3,1%

-10,7%

Sérbýli

10.539

140

7.976

106

-24,3%

-24,3%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.795

23

3.028

45

8,3%

95,7%

Samtals

39.098

726

35.962

654

-8,0%

-9,9%

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)
 
Nóvember 2018
Október 2019
Nóvember 2019
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
703
950
609
-13,4%
-35,9%
Makaskipti eða lausafé
16
12
15
-6,3%
25,0%
Makaskipti
16
11
14
-12,5%
27,3%
Lausafé
0
1
1
-
-
Hlutfall makaskipta
2,3%
1,2%
2,3%
-
-

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel. Einnig er hægt að nálgast sömu upplýsingar á talnaefnissíðu ÞÍ.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar