Alls voru 231.145 manns skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. janúar síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands. Næst kemur Kaþólska kirkjan með 14.634 einstaklinga og Fríkirkjan í Reykjavík með 10.006 meðlimi.
Fjölgun mest í siðmennt
Í desember mánuði fjölgaði mest í Kaþólsku kirkjunni eða um 80 manns. Í Ásatrúarfélaginu fjölgaði um 39 manns. Mest fækkun var í zuism eða um 43 manns.
Fjölgar í ótilgreindum skráningum og þeim sem standa utan trú- og lífsskoðunarfélögum
Alls voru 26.116 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. janúar sl. og fjölgaði þeim um 93 frá 1. desember sl.
Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélög þann 1. janúar sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2018 og 2019.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.