Alls voru 49.403 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi þann 1. janúar 2020 og fjölgaði þeim um 59 síðastliðinn mánuð. Á sama tíma fjölgaði íslenskum ríkisborgurum sem eru búsettir hér á landi um 247 samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Langflestir erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi eru frá Póllandi eða 20.655. Pólskum ríkisborgurum sem búsettir eru hér á landi fækkar milli mánaða og er það í fyrsta sinn í nokkur ár sem fækkun verður í hópi Pólverja hér á landi. Fækkunin nemur alls 19 einstaklingum.
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2018, 1. desember 2019 og þann 1. janúar 2019.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.