Alls voru 231.025 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. febrúar síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands. Næst kemur Kaþólska kirkjan með 14.618 meðlimi og
Fríkirkjan í Reykjavík með 10.002 meðlimi.
Fjölgun mest í siðmennt
Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 94 meðlimi. Í Ásatrúarfélaginu hefur fjölgað um 74 meðlimi. Mest fækkun var í þjóðkirkjunni eða um 129 og í zuism fækkaði um 83 meðlimi.Alls eru rúmlega 7% landsmanna skráð utan trú- og lífsskoðunarfélaga
Alls voru 26.229 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. febrúar sl. eða 7,4% landsmanna. Alls eru 52.731 landsmanna með ótilgreinda skráningu eða
14,5%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélög þann 1. febrúar sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2018 og 2019.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.