Alls voru 230.889 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. mars síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands. Næst kemur Kaþólska kirkjan með 14.657 meðlimi og Fríkirkjan í Reykjavík með 10.005 meðlimi.
Fjölgun mest í siðmennt
Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 132 meðlimi. Í kaþólsku kirkjunni hefur fjölgað um 103 meðlimi. Mest fækkun var í þjóðkirkjunni eða um 265 og í zuism fækkaði um 96 meðlimi.
Alls eru rúmlega 7% landsmanna skráð utan trú- og lífsskoðunarfélaga
Alls voru 26.313 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. mars sl. eða 7,2% landsmanna. Alls eru 53.117 landsmanna með ótilgreinda skráningu eða 14,5%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélög þann 1. mars sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2018 og 2019.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.