Þjóðskrá18. mars 2020

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í febrúar 2020

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkar um 0,2% frá fyrri mánuði.

Mynd sem sýnir þróun vísitölu leiguverðs síðastliðna 12 mánuði

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 204 stig í febrúar 2020 (janúar 2011=100) og lækkar um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,6% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 4,8%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjaliEinnig er hægt að nálgast sömu upplýsingar á talnaefnissíðu ÞÍ.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í febrúar 2020.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 742 samningar, sem þinglýst var í febrúar 2020. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í febrúar 2020 eru því unnar upp úr 573 leigusamningum sem þinglýst var í febrúar 2020.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í febrúar 2020 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

5023

3149

2959

2149

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

4353

3256

2708

2245

Kópavogur

3781

3079

2430

2330

Garðabær og Hafnarfjörður

5046

3200

2572

2223

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

4481

2898

2608

2297

Breiðholt

-

2714

2528

2287

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

2649

2510

-

Suðurnes

3227

2726

1862

1600

Vesturland

-

2231

1738

1708

Vestfirðir

-

-

-

1162

Norðurland nema Akureyri

-

-

1742

1626

Akureyri

-

2352

1902

1673

Austurland

-

1901

1506

1339

Suðurland

-

1867

1798

1367

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga. 

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar