Þjóðskrá06. apríl 2020

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög í apríl 2020

Alls voru 230.827 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. apríl síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands.

Alls voru 230.827 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. apríl síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands. Næst kemur Kaþólska kirkjan með 14.645 meðlimi og

Fríkirkjan í Reykjavík með 10.016 meðlimi.

Fjölgun mest í siðmennt

 Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 160 meðlimi.  Í Ásatrúarfélaginu hefur fjölgað um 115 meðlimi. Mest fækkun var í þjóðkirkjunni eða um 327 og í zuism fækkaði um  108 meðlimi. 

Alls eru rúmlega 7% landsmanna skráð utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 26.385 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. apríl sl. eða 7,2% landsmanna. Alls eru 53.616 landsmanna með ótilgreinda skráningu eða 14,5%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélög þann 1. apríl sl.  og samanburð við tölur frá 1. desember 2018 og 2019.  

 

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar