Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 642,7 stig í mars 2020 (janúar 1994=100) og hækkar um 0,1% á milli mánaða. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,2%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 1,6% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 3,6%.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.
Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.
Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Ef þú vilt skoða tímaröð fyrir vísitöluna, þá getur þú smellt hér til að skoðað gögnin í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel. Einnig er hægt að nálgast sömu upplýsingar á talnaefnissíðu ÞÍ.
Öllum eru heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.
Vísitala íbúðarverðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir apríl 2020 verður birt 19. maí n.k.