Alls voru 230.682 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. júní síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands. Næst kemur Kaþólska kirkjan með 14.665 meðlimi og Fríkirkjan í Reykjavík með 10.006 meðlimi.
Fjölgun mest í siðmennt
Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 225 meðlimi. Í ásatrúarfélaginu hefur fjölgað um 179 meðlimi. Mest fækkun var í þjóðkirkjunni eða um 472 og í zuism fækkaði um 140 meðlimi.
Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélög þann 1. júní sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2018 og 2019.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.