Þjóðskrá24. júní 2020

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í maí 2020

Í maí 2020 var 32 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 1.919 milljónir króna. Af þessum skjölum voru 8 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði.

 
Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í maí 2020 var 32 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 1.919 milljónir króna. Af þessum skjölum voru 8 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði.

Á sama tíma var 36 skjali (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 630 milljónir króna.

Á sama tíma voru 12 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 461 milljón króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 375 milljónir króna. Af þessum samningum voru 5 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Á sama tíma voru 20 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 518 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 380 milljónir króna.

Meðfylgjandi excel skjal
 sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.
 

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.



Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar