Þjóðskrá10. júlí 2020

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í júní 2020

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í júní 2020 var 366. Heildarvelta nam 19 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 52 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 13,5 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 5,1 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 0,5 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í júní 2020 var 366. Heildarvelta nam 19 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 52 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 13,5 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 5,1 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 0,5 milljörðum króna

Þegar júní 2020 er borinn saman við maí 2020 fækkar kaupsamningum um 23,9% og velta minnkar um 26,4%. Í maí 2020 var 481 kaupsamningi þinglýst, velta nam 25,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 53,8 milljónir króna.

Þegar júní 2020 er borinn saman við júní 2019 fækkar kaupsamningum um 26,2% og velta minnkar um 34,9%. Í júní 2019 var 496 kaupsamningum þinglýst, velta nam 29,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 59 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 7 í júní 2020 eða 2% af öllum samningum. Í maí 2020 voru makaskiptasamningar 16 eða 3,4% af öllum samningum. Í júní 2019 voru makaskiptasamningar 8 eða 1,7% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á maí 2020 og júní 2020

Maí 2020

Júní 2020

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

19.003

387

13.458

289

-29,2%

-25,3%

Sérbýli

6.381

80

5.098

66

-20,1%

-17,5%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

494

14

488

11

-1,3%

-21,4%

Samtals

25.878

481

19.043

366

-26,4%

-23,9%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á júní 2019 og júní 2020

Júní 2019

Júní 2020

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

18.124

395

13.458

289

-25,7%

-26,8%

Sérbýli

6.461

86

5.098

66

-21,1%

-23,3%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

4.689

15

488

11

-89,6%

-26,7%

Samtals

29.275

496

19.043

366

-34,9%

-26,2%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Júní 2019
Maí 2020
Júní 2020
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
481
467
355
-26,2%
-24%
Makaskipti eða lausafé
9
16
7
-22,2%
-56,3%
Makaskipti
8
16
7
-12,5%
-56,3%
Lausafé
1
0
0
-
-
Hlutfall makaskipta
1,7%
3,4%
2%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar