Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.
Í júní 2020 var 22 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 1.025 milljónir króna.
Þar af voru 11 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 488 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 426 milljónir króna.
Á sama tíma var 50 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 2.198 milljónir króna.
Þar af voru 24 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 1.248 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.599 milljónir króna.
Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.