Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um ávöxtun af útleigu á íbúðarhúsnæði eftir staðsetningu og herbergjafjölda fasteigna. Ársávöxtun leiguhúsnæðis er reiknuð sem hlutfall af ársleigu (12*mánaðarleiga), fengna úr þinglýstum samningum og fasteignamati íbúðar fyrir árið 2021.
Við úrvinnsluna var m.a. sleppt samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur og samningum um félagslegar íbúðir. Einnig þarf samningurinn að vera um alla fasteignina. Úrvinnslan byggist því á 6.067 samningum sem þinglýst var á tímabilinu 1.júlí 2019 til og með 31.júní 2020 og fasteignamati 2021 (sem er á verðlagi í febrúar 2020). Ávöxtunin tekur ekki tillit til breytinga á fasteignaverði sem getur verið mismunandi eftir svæðum.
Eftirfarandi töflur sýna ávöxtun af íbúðarhúsnæði fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu þar sem leigusali er einstaklingur, fyrirtæki eða fjármálastofnun. Til að gæta áreiðanleika niðurstaðna var ekki reiknuð ávöxtun þar sem leigusamningar voru færri en fimm innan stærðarflokks.
Ávöxtun af útleigu íbúðarhúsnæðis þar sem leigusali er einstaklingur
Svæði | Stúdíó íbúð | 2.herbergja | 3.herbergja | 4.-5 herbergja |
---|---|---|---|---|
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes | 6,2% | 6,3% | 6,2% | 5,4% |
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar | 5,9% | 6,4% | 6,0% | 6,0% |
Kópavogur | 2,3% | 6,2% | 6,1% | 6,2% |
Garðabær og Hafnarfjörður | 4,5% | 6,5% | 6,2% | 6,2% |
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur | 8,7% | 6,7% | 6,3% | 6,2% |
Breiðholt | 6,5% | 7,3% | 7,0% | 7,2% |
Kjalarnes og Mosfellsbær | 5,4% | 6,0% | 5,7% | |
Suðurnes nema Reykjanesbær | 7,8% | 7,7% | 7,3% | |
Reykjanesbær | 9,8% | 8,4% | 7,0% | |
Vesturland nema Akranes | 10,8% | 6,8% | 6,2% | |
Akranes | 7,2% | 6,6% | 6,8% | |
Vestfirðir | 10,3% | 12,9% | 11,2% | |
Norðurland nema Akureyri | 10,6% | 9,5% | 8,6% | |
Akureyri | 4,7% | 7,8% | 6,8% | 6,8% |
Austurland | 7,5% | 10,3% | 9,2% | |
Suðurland nema Selfoss | 6,8% | 7,2% | 6,6% | |
Selfoss | 7,7% | 6,8% | 6,5% | |
Vestmannaeyjar | 7,5% | 7,3% | 7,4% |
Svæði | Stúdíó íbúð | 2.herbergja | 3.herbergja | 4.-5 herbergja |
---|---|---|---|---|
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes | 7,4% | 6,5% | 6,0% | 6,0% |
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar | 6,7% | 6,2% | 6,4% | |
Kópavogur | 6,5% | 6,3% | 6,4% | |
Garðabær og Hafnarfjörður | 7,0% | 6,6% | 6,3% | |
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur | 7,8% | 6,9% | 6,7% | 6,1% |
Breiðholt | 7,7% | 7,8% | 7,2% | |
Kjalarnes og Mosfellsbær | 6,7% | 6,5% | 6,3% | |
Suðurnes nema Reykjanesbær | 8,0% | 8,2% | 7,1% | |
Reykjanesbær | 11,3% | 9,4% | 7,8% | 7,0% |
Vesturland nema Akranes | 7,6% | 8,6% | 6,8% | |
Akranes | 7,0% | 6,3% | 6,3% | |
Vestfirðir | 14,4% | |||
Norðurland nema Akureyri | 15,8% | 12,0% | 11,7% | |
Akureyri | 8,3% | 7,5% | 6,5% | 6,4% |
Austurland | 9,7% | 9,4% | 9,5% | |
Suðurland nema Selfoss | 8,7% | 6,9% | 6,6% | |
Selfoss | 7,4% | 7,1% | 6,2% | |
Vestmannaeyjar | 10,9% |
Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk fjölda samninga og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki. Einnig er að finna tímaröð aftur til ársins 2011.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.