Alls voru 230.657 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. september síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands. Næst kemur Kaþólska kirkjan með 14.680 meðlimi og Fríkirkjan í Reykjavík með 10.031 meðlimi.
Fjölgun mest í siðmennt
Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 655 meðlimi. Í kaþólsku kirkjunni hefur fjölgað um 620 meðlimi. Mest fækkun var í þjóðkirkjunni eða um 1.518 og í zuism fækkaði um 375 meðlimi.Alls eru rúmlega 7% landsmanna skráð utan trú- og lífsskoðunarfélaga
Alls voru 27.068 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. september sl. eða 7,3% lands-manna. Alls eru 54.703 landsmanna með ótilgreinda skráningu eða 14,9%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. september sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2018 og 2019.