Alls voru 51.404 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. október 2020 og fjölgaði þeim um 2.057 frá 1. desember sl. Fjölgunin nam 4,2%. Á sama tíma fjölgaði íslenskum ríkisborgurum sem eru með skráða búsetu hér á landi um 2.443 einstaklinga eða um 0,8%. Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofannefndu tímabili um 434 einstaklinga. Rúmenskum ríkisborgurum fjölgaði um 232 einstaklinga eða um 11,3%.
Mest hlutfallsleg fjölgun er meðal einstaklinga með venesúelskt ríkisfang eða um 112,6% frá 1. desember sl.
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2018, 1. desember 2019 og þann 1. september 2020.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi