Þjóðskrá12. október 2020

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi í október 2020

Alls voru 51.404 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. október 2020 og fjölgaði þeim um 2.057 frá 1. desember sl.

 

Alls voru 51.404 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. október 2020 og fjölgaði þeim um 2.057  frá 1. desember sl.  Fjölgunin nam 4,2%. Á sama tíma fjölgaði íslenskum ríkisborgurum sem eru með skráða búsetu hér á landi um 2.443 einstaklinga eða um 0,8%.  Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofannefndu tímabili um 434 einstaklinga.  Rúmenskum ríkisborgurum fjölgaði um 232 einstaklinga eða um 11,3%. 

Mest hlutfallsleg fjölgun er meðal einstaklinga með venesúelskt ríkisfang eða um 112,6% frá 1. desember sl.  

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2018, 1. desember 2019 og þann 1. september 2020. 

Þessar tölur eru byggðar á skráningu þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar