Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1.963 á tímabilinu frá 1. desember 2019 til 1. nóvember sl. Það sveitarfélag sem kemur næst var Garðabær en þar fjölgaði íbúum um 653 á sama tímabili.
Í ný sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi hefur íbúum fjölgað um 77 íbúa síðan 1. desember sl. eða um 1,2%.
Hlutfallslega mest fjölgun í Fljótsdalshreppi
Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Fljótsdalshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna ellefu mánuði eða um 11,6% en íbúum þar fjölgaði þó einungis um 10 íbúa eða úr 86 í 96 íbúa. Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Reykhólahreppi um 9,9% og Svalbarðsstrandarhreppur um 8,1%.Þá fækkaði íbúum í 27 sveitarfélagi af 72 á ofangreindu tímabili.
Fækkun í einum landshluta
Lítilsháttar fækkun varð á Vestfjörðum. Fækkunin á Vestfjörðum nam 0,4% eða um 29 íbúa.
Íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 1,4% eða um 3.148 íbúa. Mest hlutfallsleg fjölgun var á Suðurlandi eða um 1,7% eða um 537 íbúa.
Hér má sjá töflu yfir fjölda eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2018 og 2019.