Fjölgun mest í siðmennt
Frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 480 meðlimi. Í Ásatrúarfélaginu hefur fjölgað um 331 meðlimi. Mest fækkun var í þjóðkirkjunni eða um 1.137 og í zuism fækkaði um 271 meðlimi.Alls eru rúmlega 7% landsmanna skráð utan trú- og lífsskoðunarfélaga
Alls voru 27.506 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. nóvember sl. eða 7,5% landsmanna. Alls eru 55.140 landsmanna með ótilgreinda skráningu eða 15,0%.Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. nóvember sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2018 og 2019.