Allir íslenskir ríkisborgarar sem hafa haft lögheimili í útlöndum skemur en í 8 ár (þ.e. frá 1. desember 2012) eru sjálfkrafa með kosningarétt á Íslandi. Þeir þurfa að vera orðnir 18 ára á kjördag og hafa einhvern tíma átt lögheimili á Íslandi.
Íslenskir ríkisborgarar sem hafa haft lögheimili í útlöndum lengur en í 8 ár, þ.e. hafa flutt frá Íslandi fyrir 1. desember 2012 verða að sækja um til Þjóðskrár Íslands um að verða teknir á kjörskrá. Umsókn þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Umsækjandi verður að hafa íslenskan ríkisborgararétt.
- Umsækjandi verður að vera 18 ára eða eldri á kjördag.
- Umsækjandi þarf einhvern tíma á ævinni að hafa átt lögheimili á Íslandi.
Fullnægjandi umsókn þarf að hafa borist Þjóðskrá Íslands fyrir 1. desember 2020. Sé umsókn fullnægjandi verður umsækjandi skráður á kjörskrá til næstu fjögurra ára á eftir.