Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í október 2020 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 1.297 talsins og var upphæð viðskiptanna um 63 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar október 2020 er borinn saman við september 2020 fækkar kaupsamningum um 16,4% og velta lækkar um 16,9%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði samningum með íbúðarhúsnæði um 14,5% á milli mánaða og velta lækkaði um 16,9%.
|
Alls
|
Sérbýli
|
Fjölbýli
|
Atvinnueignir
|
Sumarhús
|
Annað
|
---|---|---|---|---|---|---|
Heildarvelta í síðasta mánuði
|
63.128
|
18.341
|
40.901
|
2.037
|
725
|
1.129
|
Þar af höfuðborgarsvæðið
|
48.184
|
10.911
|
35.542
|
1.510
|
58
|
163
|
|
Alls
|
Sérbýli
|
Fjölbýli
|
Atvinnueignir
|
Sumarhús
|
Annað
|
---|---|---|---|---|---|---|
Kaupsamningar í síðasta mánuði
|
1297
|
316
|
874
|
50
|
35
|
22
|
Þar af höfuðborgarsvæðið
|
866
|
132
|
698
|
30
|
3
|
3
|
Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í nýju skjali sem Þjóðskrá Íslands gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með þeim fyrirvara um ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til október mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar.