Hlutfallslega mest fjölgun í Fljótsdalshreppi Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Fljótsdalshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðið ár eða um 14,0% en íbúum þar fjölgaði þó einungis um 12 íbúa eða úr 86 í 98 íbúa. Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Svalbarðsstrandarhreppur um 9,8% og Reykhólahreppi um 9,2%. Þá fækkaði íbúum í 24 sveitarfélagi af 69 á ofangreindu tímabili. Fækkun í einum landshluta
Lítilsháttar fækkun varð á Vestfjörðum. Fækkunin á Vestfjörðum nam 0,3% eða um 18 íbúa.
Íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 1,4% eða um 3.352 íbúa. Mest hlutfallsleg fjölgun var á Suðurlandi eða um 1,8% eða um 54 íbúða.
Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2018 og 2019.