Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í nóvember 2020 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 1.114 talsins og var upphæð viðskiptanna um 55 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar nóvember 2020 er borinn saman við október 2020 fækkar kaupsamningum um 24,0% og velta lækkar um 22,3%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði samningum um 29,2% á milli mánaða og velta lækkaði um 28,9%.
|
Alls
|
Sérbýli
|
Fjölbýli
|
Atvinnueignir
|
Sumarhús
|
Annað
|
---|---|---|---|---|---|---|
Heildarvelta í síðasta mánuði
|
55.335
|
17.217
|
33.698
|
2.829
|
508
|
1084
|
Þar af höfuðborgarsvæðið
|
38.982
|
9.361 | 28.293 | 1.254 | 70 | 4 |
|
Alls
|
Sérbýli
|
Fjölbýli
|
Atvinnueignir
|
Sumarhús
|
Annað
|
---|---|---|---|---|---|---|
Kaupsamningar í síðasta mánuði
|
1.114
|
278
|
722
|
70
|
24
|
20
|
Þar af höfuðborgarsvæðið
|
698
|
109
|
552
|
34
|
2
|
1
|
Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með þeim fyrirvara um ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til nóvember mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á talnaefnissíðu Þjóðskrár.