Þjóðskrá16. desember 2020

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í nóvember 2020

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkar um 0,7% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 12 mánuði hefur hún hækkað um 1,4%.

 

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 201,6 stig í nóvember 2020 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,7% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,4% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 1,4%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali en einnig er hægt að nálgast sömu upplýsingar á talnaefnissíðu ÞÍ.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í nóvember 2020.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 752 samningar, sem þinglýst var í nóvember 2020. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í nóvember 2020 eru því unnar upp úr 335 leigusamningum sem þinglýst var í nóvember 2020.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í nóvember 2020 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Stúdíó íbúð 2 herbergi 3 herbergi 4-5 herbergi
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes 2937 2982 2235 2310
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar 3450 2947 2587 2101
Kópavogur 4295 2822 2377 2379
Garðabær og Hafnarfjörður - 2765 2642 2023
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur - 2677 2466 -
Breiðholt - 2161 1799 1536
Kjalarnes og Mosfellsbær - 2052 1846 1582
Suðurnes - - - -
Vesturland - - 1678 1170
Vestfirðir 2761 2700 1892 1607
Norðurland nema Akureyri - - 1354 -
Akureyri - 2367 1584 1668
Austurland - - - -
Suðurland - - - -

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar