Fjölgun mest í siðmennt
Frá 1. desember 2019 sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 615 meðlimi. Í Ásatrúarfélaginu hefur fjölgað um 399 meðlimi. Mest fækkun var í þjóðkirkjunni eða um 1.466 og í zuism fækkaði um 419 meðlimi.Nýtt trúfélag
Í desember sl. var nýtt trúfélag skráð í þjóðskrá. Það er Eþíópíska tewahedo rétttrúnaðarkirkjan og telur það nú 17 meðlimi.Alls eru rúmlega 7% landsmanna skráð utan trú- og lífsskoðunarfélaga
Alls voru 27.929 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. desember sl. eða 7,6% landsmanna. Alls eru 55.313 landsmanna með ótilgreinda skráningu eða 15,0%.Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. janúar sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2018 og 2019.