Þjóðskrá06. janúar 2021

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög - janúar 2021

Alls voru 229.688 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. janúar síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands. Næst kemur Kaþólska kirkjan með 14.653 meðlimi og Fríkirkjan í Reykjavík með 10.019 meðlimi.

Fjölgun mest í siðmennt 

Frá 1. desember 2019 sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 615 meðlimi.  Í Ásatrúarfélaginu hefur fjölgað um 399 meðlimi.  Mest fækkun var í þjóðkirkjunni eða um 1.466 og í zuism fækkaði um 419 meðlimi. 

Nýtt trúfélag

Í desember sl. var nýtt trúfélag skráð í þjóðskrá. Það er Eþíópíska tewahedo rétttrúnaðarkirkjan og telur það nú 17 meðlimi.

Alls eru rúmlega 7% landsmanna skráð utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 27.929 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. desember sl. eða 7,6% landsmanna. Alls eru 55.313 landsmanna með ótilgreinda skráningu eða 15,0%. 
Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. janúar sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2018 og 2019.  

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar