Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 684,1 stig í desember 2020 (janúar 1994=100) og hækkar um 0,6% á milli mánaða. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,4%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 5,4% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 7,7%.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.
Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.
Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar. Hægt er að nálgast upplýsingar á talnaefnissíðu ÞÍ.
Öllum eru heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.
Vísitala íbúðarverðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir janúar 2021 verður birt 16. febrúar 2021.