Fasteignavelta og fjöldi kaupsamninga
Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum fyrir árið 2020 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 13.887 talsins og var upphæð viðskiptanna um 667 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar árið 2020 er borið saman við árið 2019 fjölgar kaupsamningum um 15,3% og velta hækkar um 22,6%. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgar samningum um 15,3% á milli ára og velta hækkaði um 21,9%.
|
Alls
|
Sérbýli
|
Fjölbýli
|
Atvinnueignir
|
Sumarhús
|
Annað
|
---|---|---|---|---|---|---|
Heildarvelta árið 2020
|
667.114
|
196.566
|
416.791
|
34.704
|
9.697
|
9.384
|
Þar af höfuðborgarsvæðið
|
490.585
|
108.644 | 354.580 | 25.186 | 1.032 |
1.147 |
|
Alls
|
Sérbýli
|
Fjölbýli
|
Atvinnueignir
|
Sumarhús
|
Annað
|
---|---|---|---|---|---|---|
Kaupsamningar árið 2020
|
13.887
|
3.470
|
9.098
|
606
|
481
|
232
|
Þar af höfuðborgarsvæðið
|
8.781
|
1.322
|
7.081
|
318
|
35
|
25
|
Meðalkaupverð
|
Alls
|
Sérbýli
|
Fjölbýli
|
Atvinnueignir
|
Sumarhús
|
Annað
|
---|---|---|---|---|---|---|
Meðalkaupverð árið 2020
|
48
|
57
|
46
|
57
|
20
|
40
|
Þar af höfuðborgarsvæðið
|
56
|
82
|
50
|
79
|
29
|
46
|
Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með fyrirvara um að ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til desember mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á talnaefnissíðu Þjóðskrár.