Fasteignir29. janúar 2021

Hverjir eiga viðskipti með íbúðarhúsnæði á 4. ársfjórðungi 2020?

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um hverjir eru að eiga viðskipti með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu á 4. ársfjórðungi 2020.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um hverjir eru að eiga viðskipti með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Kaupendum og seljendum er skipt eftir því hvort þeir eru fyrirtæki eða einstaklingar og gögnin sett fram eftir ársfjórðungum til þess að minnka sveiflur af völdum mismikilla viðskipta í einstökum mánuðum.
 
 
 
 
Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum. Fyrstu kaupendur Frá október 2015 hefur Þjóðskrá Íslands birt upplýsingar um fjölda þeirra sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð. Taldir eru þinglýstir kaupsamningar og afsöl um íbúðarhúsnæði án undangengins kaupsamnings og eignayfirlýsingar. Ekki eru taldar með eignatilfærslur byggðar á erfðum eða öðru slíku. Heimild til lægri stimpilgjalda vegna fyrstu kaupa hefur verið til staðar frá 1. júlí 2008. Af þessum sökum eru engar þinglýstar upplýsingar um fyrstu kaup fyrir þann tíma. Rannsókn á því hvort um fyrstu kaup var að ræða fór fram við móttöku skjala til þinglýsingar hjá sýslumönnum. Upplýsingar um fyrstu kaup 4. ársfjórðung 2020
  Fjöldi eignarheimilda Þar af fyrstu kaup  Hlutfall fyrstu kaup 
 Höfuðborgarsvæðið  2436  795  33%
 Suðurnes  261  69  26%
 Vesturland  132  35  27%
 Vestfirðir  60  18  30%
 Norðurland vestra  29  11  38%
 Norðurland eystra  261  78  30%
 Austurland  87  25  29%
 Suðurland  236  58  25%

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum frá 2008.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar