Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í janúar 2021 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 967 talsins og var upphæð viðskiptanna um 68,5 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar janúar 2021 er borinn saman við desember 2020 fækkar kaupsamningum um 28,8% og velta lækkar um 8,1%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði samningum um 30,7% á milli mánaða og velta lækkaði um 37,7%.
Alls
|
Sérbýli
|
Fjölbýli
|
Atvinnueignir
|
Sumarhús
|
Annað
|
|
---|---|---|---|---|---|---|
Heildarvelta í síðasta mánuði |
68.611
|
13.325
|
31.152
|
22.526
|
590
|
1.018
|
Þar af höfuðborgarsvæðið |
35.994
|
8.176 | 25.780 | 1.917 | 43 |
78 |
Alls
|
Sérbýli
|
Fjölbýli
|
Atvinnueignir
|
Sumarhús
|
Annað
|
|
---|---|---|---|---|---|---|
Kaupsamningar í síðasta mánuði |
967
|
216
|
650
|
56
|
26
|
19
|
Þar af höfuðborgarsvæðið |
620
|
90
|
494
|
29
|
2
|
5
|
Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með þeim fyrirvara um ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til síðasta mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á talnaefnissíðu Þjóðskrár.