Hlutfallslega mest fjölgun í Helgafellssveit
Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Helgafellssveit fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna tvo mánuði eða um 7,7% en íbúum þar fjölgaði þó einungis um 5 íbúa eða úr 65 í 70 íbúa.Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Skaftárhreppi um 4,1% og Ásahreppi um 3,6%. Þá fækkaði íbúum í 36 sveitarfélögum af 69 á ofangreindu tímabili.
Fækkun í tveimur landshlutum
Lítilsháttar fækkun varð á Austurlandi og Norðurlandi vestra. Íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 0,4% eða um 879 íbúa. Mest hlutfallsleg fjölgun var á Vestfjörðum eða um 0,5% eða um 32 íbúa.Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2019 og 2020.