Nýjar upplýsingar um fjölda íbúða eru nú birtar í Fasteignagátt Þjóðskrár.
Þar má finna yfirlit yfir fjölda fullbúinna og ófullbúinna íbúða hverju sinni eftir landshlutum, sveitarfélögum og tegundum íbúða.
Gögnin eru uppfærð með sjálfvirkum hætti á hverjum degi og því má alltaf ganga að því vísu að um sé að ræða nýjustu upplýsingar hverju sinni.