Fólk05. mars 2021

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög - mars 2021

Alls voru 229.655 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. mars síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands.

 
Alls voru 229.655 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. mars síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands. Næst kemur Kaþólska kirkjan með 14.661 meðlimi og Fríkirkjan í Reykjavík með 10.009 meðlimi.

Fjölgun mest í siðmennt 

Frá 1. desember 2020 sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt eða um 108 meðlimi.  Í Ásatrúarfélaginu hefur fjölgað um 79 meðlimi.  Mest fækkun var í zuism eða um 121 meðlimi og í þjóðkirkjunni um 62 meðlimi. 

Alls eru 7,6% landsmanna skráð utan trú- og lífsskoðunarfélaga
Alls voru 28.151 einstaklingur skráður utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. mars sl. eða 7,6% landsmanna. Alls eru 55.838 manns með ótilgreinda skráningu eða 15,0%. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. mars sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2019 og 2020. 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar