Hlutfallslega mest fjölgun í Árneshreppi
Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Árneshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna fjóra mánuði eða um 10% en íbúum þar fjölgaði þó einungis um 4 íbúa. Næst kemur Helgafellssveit með7,7% fjölgun sem er líkt og með Árneshrepp lítilsháttar fjölgun í hausum talið eða um 5 íbúa.
Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Ásahreppi um 5,8% og Skaftárhreppi um 4,9%. Þá fækkaði íbúum í 35 sveitarfélögum af 69 á ofangreindu tímabili.
Fækkun í þremur landshlutum
Lítilsháttar fækkun varð á Vesturlandi, Austurlandi og Norðurlandi vestra. Íbúum á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um 0,5% eða um 1.118 íbúa. Íbúum á Vestfjörðum fjölgaði einnig um 0,5% eða um 34 íbúa.Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2019 og 2020.