Fólk08. apríl 2021

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög í apríl 2021

Frá 1. desember 2020 sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt og ásatrúarfélaginu eða um 126 meðlimi.

 
Alls voru 229.597 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. apríl síðastliðinn skv. skráningu Þjóðskrár Íslands. Næst kemur Kaþólska kirkjan með 14.643 meðlimi og Fríkirkjan í Reykjavík með 10.000 meðlimi.
Fjölgun mest í siðmennt og ásatrúarfélaginu
Frá 1. desember 2020 sl. hefur fjölgunin verið mest í Siðmennt og ásatrúarfélaginu eða um 126 meðlimi. Mest fækkun var í zuism eða um 135 meðlimi og í þjóðkirkjunni um 120 meðlimi. 

Alls eru 7,7% landsmanna skráð utan trú- og lífsskoðunarfélaga
Alls voru 28.308 einstaklingur skráður utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. mars sl. eða 7,7% landsmanna. Alls eru 55.917 manns með ótilgreinda skráningu eða 15,1%. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum þann 1. apríl sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2019 og 2020. 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar