Fasteignir21. apríl 2021

Aldrei fleiri kaupsamningar á fasteignamarkaði

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í mars 2021 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 1.648 og hafa aldrei verið fleiri frá árinu 2006. Upphæð viðskiptanna var um 85 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar mars 2021 er borinn saman við febrúar 2021 fjölgar kaupsamningum um 25,2% og velta eykst um 29,1%. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði samningum um 21,4% á milli mánaða og velta hækkaði um 28%.

 

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í mars 2021 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 1.648 og var upphæð viðskiptanna um 85 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar mars 2021 er borinn saman við febrúar 2021 fjölgar kaupsamningum um 25,2% og velta eykst um 29,1%. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði samningum um 21,4% á milli mánaða og velta hækkaði um 28%.

Fasteignavelta í milljónum króna
Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Heildarvelta í síðasta mánuði
85.013
23.856
54.299
4.412
1.256
1.194
Þar af höfuðborgarsvæðið
62.104
 12.865  45.599  3.359  59
222
 Fjöldi kaupsamninga
Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Kaupsamningar í síðasta mánuði
1.648
378
1.110
74
48
38
Þar af höfuðborgarsvæðið
1.020
131
840
42
2
5

Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með þeim fyrirvara um ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til síðasta mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar í fasteignagátt Þjóðskrár


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar