Nýjar upplýsingar um fjölda íbúða eftir byggingarárieru nú birtar í Fasteignagátt Þjóðskrár.
Þar má finna yfirlit yfir fjölda íbúða í fjölbýli og sérbýli eftir byggingarárum aftur til ársins 1900. Skoða má gögnin bæði eftir landshlutum og sveitarfélögum.
Gögnin eru uppfærð með sjálfvirkum hætti á hverjum degi og því má alltaf ganga að því vísu að um sé að ræða nýjustu upplýsingar hverju sinni samkvæmt skráningu í fasteignaskrá.
Nánar um gögnin:
- Um er að ræða fjölda skráðra íbúða í Fasteignaskrá sem hafa fengið úthlutað byggingarári samkvæmt skráningu byggingarfulltrúa. Byggingarár er alla jafna skráð þegar fasteignir eru komnar á byggingarstig 4.
- Gögnin eru uppfærð sjálfvirkt einu sinni á dag miðað við gildandi skráningu í Fasteignaskrá.
- Eignir eru taldar sem sérbýli ef um er að ræða einbýli, parhús eða raðhús. Aðrar íbúðareignir teljast sem fjölbýli.
- Fjöldi innan hvers sveitarfélags miðast við núverandi afmarkanir sveitarfélaga.