Hins vegar hefur þeim sem eru skráðir með búsetu í Hafnarfirði fækkað um 203 og íbúum á Seltjarnarnesi um 69 sem gerir um 1,5% fækkun.
Hlutfallslega mest fjölgun í Árneshreppi
Þegar horft er til alls landsins þá hefur íbúum Árneshrepps fjölgað hlutfallslega mest síðastliðna fjóra mánuði eða um 12,5% en íbúum þar fjölgaði þó einungis um 5 íbúa. Næst kemur Tjörneshreppur með
8,9% fjölgun sem er líkt og með Árneshrepp lítilsháttar fjölgun í hausum talið eða um 5 íbúa.
Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Ásahreppi um 5,8% og Fljótsdalshreppi um 5,1%. Þá fækkaði íbúum í 30 sveitarfélögum af 69 á ofangreindu tímabili.
Fjölgun í öllum landshlutum
Íbúum fjölgaði í öllum landshlutum. Hlutfallslega mest á Vestfjörðum eða um 0,9% og á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Austurlandi um 0,6%.Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2019 og 2020.