Fasteignir18. júní 2021

Fasteignamarkaðurinn í maí 2021

Fasteignavelta helst svipuð á milli mánaða

 

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í maí 2021 samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 1.329 og var upphæð viðskiptanna um 69 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu. Þegar maí 2021 er borinn saman við apríl 2021 fækkar kaupsamningum um 4,0% og velta lækkar um 2,6%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði samningum um 3,9% á milli mánaða og velta lækkaði um 2,6%.

Fasteignavelta í milljónum króna

Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Heildarvelta í síðasta mánuði
68.551
20.174
41.531
5.087
1.089
671
Þar af höfuðborgarsvæðið
48.235
 10.532  33.634  3.991  66
12
 Fjöldi kaupsamninga

Alls
Sérbýli
Fjölbýli
Atvinnueignir
Sumarhús
Annað
Kaupsamningar í síðasta mánuði
1.329
325
860
70
53
21
Þar af höfuðborgarsvæðið
771
112
615
39
3
2

Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til dagsins í dag í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis. Fréttin er birt með þeim fyrirvara að ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til síðasta mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar í fasteignagátt Þjóðskrár


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar