Gjald fyrir breytingu á kyni og nafni hefur verið lagt af og eru þessar breytingar nú gjaldfrjálsar. Sækja má um breytingu á kyni og nafni á vef Þjóðskrár. Áður kostuðu þessar breytingar kr. 9.000 sem kveðið var á um í lögum um aukatekjur ríkissjóðs.
Þjóðskrá vekur athygli á að greiða þarf kr. 4.000 fyrir umfjöllun mannanafnanefndar ef nafn er ekki á mannanafnaskrá.